Giljaland er ein af 20 lögbýlum í Skaftártungu. Sveitin liggur mitt á milli tveggja stærstu hraunbreiða Íslandssögunnar: hraunanna sem runnu úr Eldgjá á 10. öld og Lakagígum á 18. öld (1783). Jarðvegurinn á svæðinu er þykkur og frjósamur, myndaður af öskulögum úr nærliggjandi eldstöðvum og seti úr jökulánum. Giljaland dregur einmitt nafn sitt af aðaleinkenni svæðisins: hinum fögru og djúpu giljum sem ár og lækir hafa sorfið í jarðveginn.